...nei - ég kann ekki að sauma

Eik Sko.

04.12.2007 12:22:26 / EikSk

nýtt blogg

já. ég er farin héðan. ég er núna á

 

www.eiksko.bloggar.is

 

og ætla mér að vera þar held ég.

okei.. fara þangað í staðinn..

- Eik


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 16:20:54 / EikSk

ferðalag

núna, eftir nákvæmlega einn klukkutíma og fjörutíu mínútur fer ég til edinborgar. ég verð yfir helgi offkors og kem heim á mánudeginum.

endilega hugsið fallega til mín.

 -Eik


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 21:01:12 / EikSk

mánudagur

just another manic monday..

tja.. get ekki alveg sagt það.. keypti nokkrar jólagjafir í dag.. og btw.. þá sökkar blogcentral. þetta hérna til vinstri fyrir ofan allt draslið átti að standa þú veist.. kem eftir íslands eftir svona marga daga osfr.. en það er bara farið? og ekki í fyrsta skipti. svo kemur þetta líka fyrir hjá myndunum.. iss.. held ég fari yfir á bloggar.is - það er að virka fyrir alla hina allavega. ætla að prófa það og tjekka hvort ég fatti það hratt.. nenni ekki ef það er bara smá flókið - eins og ég segji, ef það er vesen þá gleymdu því!

ANNARS... er stutt í að ég fari að heimsækja maría björt í edinbraaah.. það er á föstudaginn sem ég fer og ég verð vonandi fram á mánudag. annars fékk ég skó frá henni möttu í dag :haha: jólagjöf. vei vei.

CLEO by KG look at my shoooooes!!! svo floooottir!! og já, þeir eru fjólubláir.. núna á ég silvur og græna og lilla skó. mig langar líka í bleika. ætlað reynað finna flotta bleika skó áður en ég kem heim.

ég elska þessa skó. vil ekki fara út í þeim hérna því það ringdi í allan dag og hef enn ekki látið svona vörn á þá en ég var í þeim inni aaaallan tíman.. ójá. love them!

DECADENCE by Kurt Geiger mig langar soldið í þessa.. en þeir kosta 140 pund.. sem er frekar dýrt.. þannig að ég kaupi þá måske bara á næsta ári þegar ég hef sparað aaaðeins meir..

oooooog.. hún lárulíus sagði mér að gugga ætlaði að halda partý 22. des og ég hlakka til. svo er auðvitað djamm á þorláksmessu líka. já já. þetta er allt gott og blessað. held þetta verði blaut jól?

jæja, ég ætla að leggjast núna og lesa pride and prejudice.

-Jane


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 10:57:06 / EikSk

miðvikudagur

allrighty.. 30 dagar þangað til ég kem heim. hlakka ég til? ööhh.. já?

ég var að pæla stelpur mínar.. að borða saman eins og síðast.. en måske gera það heima hjá einhverjum.. þarf maður ekki að panta borð í júli fyrir christmastime? svo er líka bara svo gaman að elda saman. og svo á ég ekki pening. og veit ekki hvort þið eruð ríkar, en ég er ekki rík. fæ jú ekki gull í budduna mína hérna.. og svo er ég að fara í klippingu 22.des þannig að það er svona 15 - 20 þús.. aaallavega.. láta mig vita um matarboð. þá geta aallir komið.

og.. ég er að horfa á sjónvarpið. það er þáttur um enskan rappara sem er hommi.. og hann er að rappa um það að vera hommi. veit ekki hvort hann fái R E S P E C T og street-cred fyrir það?

fer til maríu eftir rúmlega viku.. veiiii! mig hlakkar svo til. það verður svo gott að komast aðeins í burtu í smá pásu og líka bara að sjá edinborg.. og ég get ekki sagt þetta nafn á ensku.. það er sagt.. edinbraahhh... og ég er bara.. ednibrrraah.. can't do it.

við vorum með heimsókn frá svíþjóð yfir helgi. æskuvinkona möttu + kallinn hennar og tvö börn. og.. ég er allavega þreytt núna.. ennn.. í dag kemur önnur vinkona hennar möttu í heimsókn og verður fram mánudag.. hún er að fara í aðgerð hjá honum Auðunn(i) og that's it.. hún tekur ekki börn eða neitt þannig með sér, svo ég er ekki að passa og leika super-nanny.. so it'll be good.. samt er matta á dagvakt 9-21 .. þannig að ég er reyndar að passa eins og mófó.. sem þýðir bara money, money, money.. sem ég á eftir að eyða í bangers og mash í edinbraaahh...

okei.. núna ætla ég að halda áfram að glósa vöðvana.. og farðu inná facebook.co.uk/com og skráðu þig.. þetta er bara soldið skemmtilegt?

-Supernanny


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 12:56:20 / EikSk

...BLACKOUT

keypti Spice Girls diskinn... og britney.. og hér kemur my verdict on britney's new album...

i like.. i like a lot. það eru þrjú lög sem ég fíla mjög mikið og hef hlustað á svona tuttugu sinnum.. það er piece of me, heaven on earth og get naked - i got a plan... og ég mæli með þessum disk.. hún er svona að leika sér að eletronic dóti.. og mér finnst þetta bara flott.. og piece of me.. ég er með á repeat.. i love it!

fólk í heimsókn í dag. verður hér þangað til í næstu viku.. og ég missi þar af leiðandi herbergið mitt og get ekki lært.. en ég ætla að lesa núna.. og svo verð ég að .. gera bara eitthvað annað yfir helgi og veit ekki hvernig ég á að læra fyrir þriðjudag og miðvikudag í næstu viku.. í skólanum måske?

annars er hún Kit vinkona mín í dk. að flytja til Austurríkis 27-28 des.. hún er að farað vinna a skíðahóteli og.... hótelið hennar rétt hjá hótelinu sem við förum á í mars 08.. svo ég verð bara rétt hjá henni og hún ætlar að kenna mér á skíði og taka mig á djammið! vei vei ó vei..

annars um 30-og-eitthvað dagar þangað til ég kem heim.. it'll be good. fer svo til maríu í edinborg eftir tvær vikur sirka..

allrighty.. hlusta á britney people! koma svo


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 21:28:59 / EikSk

fimmtudagur

þessir eru líkir..

rúmlega 40 dagar þangað til ég kem heim.. hlakka til að koma heim. it'll be good. annars hef ég verið að biðja fólk um að hitta mig í pulsupartýi fyrir utan bæjarins beztu þegar ég kem heim.. ég mun gefa kókómjólk :haha:

fer í heimsókn til Maríu fyrstu helgina í desember.. hef aldrei verið í Edinborg áður svo hún ætlar væntanlega að sýna mér alls konar.. þar sem að ég hef áhuga á öðru en djamminu.. verður spennandi að sjá hvort hún geti gefið með jafn góðan guided-tour og ég fékk í Brighton.. da da da dummm...

er að horfa á þátt sem heitir Mummy Diaries.. og hann fjallar um mæður sem eru að deyja.. og eru að skrifa dagbækur og bréf og alls konar þannig fyrir börnin sín.. mér finnst þessi þáttur sorglegur og leiðinlegur.. en það er fótbolti á hinni stöðinni.. kannski ég ætti bara að halda áfram að horfa á Heroes? hm? það er jú á netinu.. nema það að netið er svo shitty hérna að það tekur ár og daga að dl. einum þætti..

Blackout kemur út 12 nóv.. ætla mér að kaupa það..

Sumir segja að þetta sé besta albúmið hennar hingað til.. og aðrir segja að þetta sé rugl og ég ætti ekki að kaupa þetta.. en hey! pfff... ég ætlað kaupa þennan geisladisk.. hlusta á hann nokkrum sinnum og skal svo segja ykkur hvað mér finnst.. song for song 8)

okei.. þessi þáttur er bara.. sorglegur. get ekki horft á hann.. ætla niður og ná mér í grænt te og súkkulaði kex!

love ya'll


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 21:33:38 / EikSk

Guy Fawkes

 

Guy Fawkes nótt er hátíð sem er haldin að kvöldi til 5 nóv á hverju ári. Það er þó aðallega hátið sem er hérna í Bretlandi en ætli það séu ekki nokkrar breskar familíur útí heimi sem halda upp á þetta svona for the kids.. allavega.. hátíðin er haldn til að minnast hins misheppnaða Púðursamsæris svokallaða, þegar hópur kaþólskra samsærismanna - þar á meðal hann Guy Fawkes -  ætluðu sér að sprengja Jakob hinn fyrsta og breska þingið í bits and pieces með því að koma mörgum púðurtunnum fyrir í kjallara Westminsterhall.. það var 5 nóv árið 1605 - kapparnir ætluðu svo að kveikja í þessum púðurtunnum við þingsetningu daginn efir en hann Guy Fawkes var gripinn glóðvolgur í kjallaranum að koma þessum tunnum fyrir - og þar af leiðandi voru allir vinir hans handteknir og teknir af lífi.. svo.. núna er venjan að skjóta upp flugeldum og hafa brennur þar sem brúða - effigy eins og þeir kalla það - ... já.. brúða af honum Guy Fawkes er brennd...

og viti menn.. í kveld er Guy Fawkes night.. svo það er verið að skjóta upp flugeldum alveg á milljón og égsé þetta hérna frá stofuglugganum mínum á 3.hæð.. voða fallegt.. annars á ég að vera lesa.. en ég nenni því ekki. mér finnst þetta ekki spennandi.. að lesa um beinin.. er að lesa um short; flat; irregular and sesamoid bones.. og svo á ég að vita hvað Epiphysis og diaphysis er.. ég veit ekki hvað það er.. og mun eflaust aldrei komast að því.. ég hef bara engan áhuga á þessu..

ég fer måske til maríu í heimsókn í edinborg í des. mig langar mikið að fara. sérstaklega af því það er svo auðvelt. það er bara ein lest. þarf ekki að skipta. og svo ætlaði ég að vara ykkur við red bull og vodka. var að lesa í The Times í dag að fólk sem drekkur vodka í redbull er fjórum sinnum líklegra til að annað hvort lenda í slagsmálum og/eða einhverju öðru sem ég mani ekki hvað var ;) ... og svo var talað um hversu fucked heilinn verður á þessu því hann veit ekki hvort þú sért með of mikið af orku út af redbull sem þú þarft að brenna eða hvort það sé of mikið magn af áfengi sem þarf að losa sig við.. svo nýrun taka einig mikin skaða.. maría björt þetta er sérstaklega fyrir þig.

annars ætla ég að halda áfram að lesa um the bones.. god..


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 20:50:55 / EikSk

sunnudagur

já. ég var í brighton og myndirnar eru loksins komnar inn.. þetta var geggjuð ferð. ójá. ég fer alveg pott þétt aftur til helgu á næsta ári. måske bara þegar ég á ammæli? já já.. tími til að plana aðra ferð. svo er þetta svo ódýrt þannig séð sko.. og næst veit ég nákvæmlega hvernig ég á að komast og fara.. því þessar lestar er pís of sjitt...

allavega.. ég kem heim föstudaginn 21 desember klukkan 14:30. mamma ætlar að ná í mig.. og svo er ég annars bara laus þegar ég kem i bæinn.. þannig ef þú villt hitta mig yfir kaffidreitil eða nokkrum bjórum er ég laus og liðug eins og maðkur. eða.. e-ð annað aðeins meira aðlaðandi.. þúst.. ég veit bara að ég ætla að knúsa Þöll, þulu, esju og molann hennar ásu. er búið að skýra barnið? má ég skrifa nafnið núna? somebody tell me! jólafríið mitt er svo búið miðvikudaginn 2 janúar klukkan 15 því þá fer ég út á leifsstöð með þeim.. og fer aftur til walsall.. aahh oui.. svo þú verður bara að mæla þér mót við mig. t.d. gamlárskvöld.. það er svo mikill böggar að reyna að hitta alla því það verður engin á sama stað.. svo ég veit ekki alveg hvernig þetta verður. en mig langar að hitta ÞIG.

svo er ég ekki að gera mikið. nenni ekki að læra. á að lesa um beinin.. en mér finnst þetta leiðinlegt.. svo ég verð ábyggilega ekki nuddari skal ég segja þér. sorry mom

klukkunni var stillt einum kl. á eftir í dag.. þannig að ég græddi 60 mín. svo þegar ég vakna á morgun klukkan átta.. er klukkan í raun og veru níu.. ég á samt ábyggilega ekki eftir að taka eftir því þannig séð.. verð ábyggilega alveg jafn þreytt..

svo vil ég að allir hugsi vel til Margeirs á morgun og hinn.. hann er að fara í inntökupróf í Oxford flugskólann.. og ég held að hann komist inn þessi elska! ég vona það allavega.. svo allir að hugsa vel til hans svo hann verði ekki of stressaður!! ó.. hvað ég er spennt fyrir hans hönd!¨

en ætla að horfa á johnny depp myndina núna.. gotta gó!

pís


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 22:47:03 / EikSk

ég veeeeit

já, það er langt síðan ég bloggaði

já, ég var í brighton

já, ég lofa að blogga um það

ja, ég lofa að láta myndirnar inn um leið og ég nenni því

annars ætla ég að láta ykkur fara inn á youtube.com og leita að henni Lil' Mama og vídjóinu Lip Gloss.. ég hef hlustað á það svona ótt og títt (á hverjum einasta degi) síðan Helga Sólveig var hérna í september... og ég elska þetta lag. það er geggjað. svo ég vildi bara deila þessu með ykkur. og hún er einnig með annað lag sem heitir G-slide tour bus.. en hlusta fyrst á Lip Gloss.. algjör bits í fallegri merkingu þessi stelpa.. svo er hún bara fimmtán eða e-ð álíka.. iss...

Lil' Mama - Lip Gloss
hlusta á það og láta mig svo vita how u like!

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 21:25:05 / EikSk

miðvikudagur

jæja.. ég er búin að blogga.. eða - setja myndirnar inn frá ferðinni..

og eins og flestir vita, þá fékk ég matareitrun síðasta föstudag.. þegar við fórum LOKSINS á hótel.. og var þar lasin í tvo daga.. svaf og ældi.. eiginlega það eina sem ég gerði.. annars var þetta mjög skemmtileg ferð og ég lærði að sigla og á seglin og alls konar sjóara dót.. rosa dugleg..

annars vil ég segja TIL HAMINGJU ÁSA OG ALEX með litla kútinn ykkar. hún er svo sæt svo sæt. hlakka til að koma heim og knúsa hana og kyssa og passa og allt það sem plat-frænkur gera!! :haha:

annars er bara.. ekki mikið að gerast hérna.. eða. ég lýg reyndar.. var í prófi í dag.. gekk mjög vel bara.. soldið erfitt að skrifa á ensku, þegar ég vil orða þetta vel og fræðilega.. en ég gat þetta nú samt.. á föstudaginn fer ég í heimsókn til Helgu Sollu í Brighton.. og verð yfir helgi.. fer aftur til Walsall á föstudaginn.. og svo er ég að vonast eftir því að María komi til mín 26 október, sem er föstudagur.. því þá er víst halloween partý hérna í walsall.. og okkur langar.. annas hef ég kynst stelpu sem heitir Angelina.. hún er ekki leiðinleg. hún er rosalega góð. og við ætlum að hittast í fríinu.. já.. það er sem sagt half term í skólanum í næstu viku.. sem þýðir, að ef ég væri í fullu námi.. myndi ég fá frí í þessari viku.. þeir hafa það soldið gott hérna.. allavega, við ætlum að hittast yfir pint and a fag.. eða hvað sem maður nú gerir þegar maður hittist hérna.. það eru jú ekki kaffihús..

en ég er mjög þreytt eftir að hafa látið allar þessar myndir inn.. svo ég ætla að segja góða nótt... og enjoy the pictures people!

- Eik


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 19:11:56 / EikSk

föstudagur

í nótt fer ég til mallorca. við lendum í palma um ellefu leytið og þá tökum við leigubíl í uþb 40 mín eitthvert.. hef ekki hugmynd um hvert.. en matta segir að við ætlum aðeins að stoppa á magaluf.. haha.. shagaluf.. mun sýna þeim vibbalega hótelið sem við vorum á í útskriftarferðinni.. OOOG... þá erum við víst aðeins að farað kaupa vatn og sonna til að hafa á bátnum.. auðunn talaði aðallega um bjór og vín.. ég bara.. já.. en ég þarf helst líka vökva sem er hægt að pissa.. okei? svo ég fæ mitt font vella vatn.. og eins og t.d. hún maría veit þá drakk ég alveg fimmtán lítra af font vella á dag þegar við vorum á shagaluf þar sem að FONT VELLA ER BESTA VATN Í HEIMI!

og... þá fer Siggi að sofa og við siglum eitthvert.. get it.. siglum.. ég sigla.. díses kræst.. þetta verður spennandi.. ég mun dokjúmentera allt sem ég geri þarna.. spes þegar ég er að sigla.. hvernig mér líður og hvort ég ætli að deyja því ég æli eða hvor ég sé bara hraust sjókona.. haha.. held þó ekki að ég sé það.. en hey, aldrei að vita.. måske er þetta in my blood.. og svo eru eitthvert vinafólk þeirra frá london sem verða með okkur fram á fimmtudag.. þau eru bresk og víst voða næs.. svo við ætlum að sigla eitthvert og ákveða hvar við ætlum að borða.. ó mæ god.. og ég má ekki borða kartöflur núna.. svo ég er með val á milli fruitsalat eða bara plain salat.. hmm... held ég drekki bara meiri bjór þá :haha: quadro cervesa por favor.. er það ekki svona?

annars var mér boðið á deit.. og ég afþakkaði það.. gaurinn var með BARBARA tattú á handleggnum.. mér vitanlega þarftu að vera stupid að fá þér svona stórt tattú af fyrrv. kærustu. pretty dumb!

Ég bíð mjög spennt eftir að ása fæði telpuna sína.. það á víst að setja hana í gang og ég verð ekki með síma þarna úti.. god.. en ég ætla að hringja í hana úr pay-phone á þriðjudag eða miðvikudag til að heyra hvernig þetta allt gekk.. og ég meina allt. hún er jú sú fyrsta úr þessum svokalla hóp sem eignast barn.. i need all the gory details!

annars á ég ellefu evrur.. efast um að ég geti keypt mikið fyrir það. måske eitt par af eyrnalokkum.. en mig langar í ylmvatn sem heitir .... það heitir... eh.. eitthvað rokk.. kaupi það á morgun ef ég á pening fyrir því.

jæja. ég þarf að taka til restina af stöffinu og svo fara niðu og láta í uppþvottavél og taka líka til eftir börnin.

sjénst..


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 19:34:11 / EikSk

wednesday

sjúklega langt síðan, ha?

já.. hún angelinaaahhh er bra ekkert svo leiðinleg. hún er mjög góð stelpa. ég var måske aðeins og snögg að dæma..

annars er ég að fara til spánar núna á laugardagsmorgun.. og éghlakka svo til. og ég er svo tilbúin í frí.. í hita og sól.. ójá!! ég er búin að pakka liggur við ég er svo tilbúin..

en ég er svo þreytt svo þreytt.. er bara að bíða eftir að matta sé búin að vinna klukkan níu svo ég geti náð í hana og svo fer ég að S O F A.. ójá.

en ég bara.. segji bless.. og lofa að blogga aðeins áður en ég fer út.. segji frá allskonar skemmtilegum hlutum.. vei vei..

 you know you love me


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 20:49:22 / EikSk

þriðjudagur

halló halló..

í dag var ég í fyrsta alvöru nuddtímanum.. og það var nokkuð sem mér fanst soldið kjánalegt.. þegar við erum að nudda karlmenn meigum við ekki, undir neinum kringumstæðum fara yfir hnéð ef við erum að nudda lappirnar altså.. og ekki fyrir neðan nafla.. en á konum.. pff.. hverjum er ekki sama.. mér? svo var ein gella sem mig langar að sparka í ... Ahngehlihnah...? ég er out off breath bara þegar ég er búin að segja nafnið hennar.. that's it.. ætla ekki að tala illa um hana hérna .. núna.. það kemur ábyggilega seinna.. en ég er komin með massage-buddy. hún heitir Ruby og er lítil og feit og aaaalgjört krútt :haha: fyndin og algjört yndi.

helga var hjá mér þessa helgi sem var að líða.. og það var svo gaman svo gaman. ég var á ung-lækna djammi með henni möttu kvöldið áður en helga kom svo ég var soldið þunn þegar ég keyrði og náði í hana í birmingham.. nota bene.. þá keyrði ég eftir tomtom'inum.. og ég stimplaði inn new street því lestarstöðin heitir það.. og ég bara gerði eins og tomtom'inn sagði mér að gera.. nema það að ég fattaði ekki fyrr en ég var orðin uþb hálftíma of sein til helgu að tomtom'inn var að guida mér á New Street götuna. ekki lestarstöðinna.. þannig að ég var þarna lost í birmingham.. algjörlega LOST!!! og til að geta stimplað inn new destination þurfti ég area code og code fyrir new street station.. og var ég með það? nei. og vissi ég hvert ég átti að fara? nei.. þannig að ég var bara.. eeh.. keyri bara til hægri hérna.. nei, okei.. vinstri.. og einhvernveginn fann ég bull ring.. og svo var new street bara við hliðinná.. en þá var helga búin að bíða soldið lengi.. en vatt ðe hei.. svo við fórum og fengum okkur að borða.. og ég var enn þunn.. svo þurfti ég að keyra heim.. en það gekk nú vel... annars vorum við bara að djamma.. og ég á eftir að láta myndirnar inná.. geri það seinna.. þegar ég nenni.. ábyggilega á morgun held ég.. þetta voru nokkuð töff myndir sko. og fullt af fólki sem við vitum ekki hver er sem tróð sér með inn á myndirnar.. en við vorum fabolous..OG.. hún helga reyndi að kenna mér Keira Knightley andlitið.. en ég kann það ekki.. lít bara út fyrir að vera með skeifu..

jæja.. á morgun er einnig skóli.. frá sex til hálf átta.. en þá þurfum við ekki að vera í uniform.. sem er gott.

en jæja.. eitt enn reyndar.. ef þið ætlið að hringja eða senda sms, þá flest þið sem hafið fengið nr. mitt af mér og ekki hérna frá þessari síðu. þá EKKI gera 0044 077....(nenni ekki að skrifa allt??)...4 ... bara gera 0044 7765.....4 - sem sagt sleppa núllinu sem kemur á eftir landakóðanum.. got it?

well. er farin að horfa á tv.. og ég er mucho svöng!

you know you love me


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 18:19:06 / EikSk

TIL HAMMÓ MEÐ AMMÓ !

 

hún á afmæli í dag

hún á afmæli í dag

hún á afmæli hún maaaaarííííííaaaa

hún á afmæli í dag!!!

vei vei og vúhú!!

mér þykir voðalega vænt um þessa telpu hérna..

and we do go way back. þetta blogg er tileinkað henni en ég þarf nú ekki að segja mikið. flesti þekkja þessa stúlkukind og vita hvað hún hefur gert og sagt og.. allt þar á milli. hún elskar redbull í vodka meir en mömmu sína og fer helst ekki í langt ferðalag án þess að taka kokteilsósu, kók og marlboro light með sér í stóru friis & company töskuna sína.

ég elska þig maría mín, til hamingju með afmælið!


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 21:48:01 / EikSk

föstudagur

 þetta bros er fyrir hann afa minn. ég átti því miður ekki aðra mynd af mér það sem ég brosi, þannig að þessi verður að duga. annars er ég í svo flottum búning að það á ekki að skipta máli :haha:

í dag fór ég í walsall college.. og skráði mig í nudd.. full body/swedish massage.. og ég þurfti að taka stöðupróf í literacy og numeracy. tja, stæ er ekki mín sterka hlið en hey. ég massaði literacy, i'm above avarage!!! wupdífokkindew.. sem mér finnst mjög skemmtilegt, ég er á level 3. vei vei.. allavega, svo byrjar þetta á þriðjudaginn og ég þarf að taka 40 pund með fyrir búningnum. já. ég á að vera í búning. ætlað reynað finna mynd af búningnum á google.

Closed Mandarin Collar Short-Shirt Spa Uniform Top sirka svona nema með lengri ermar og aðeins síðari, og svo svartur. orh. svo ballerínu skór við. díses. mér finnst þetta geggjað. hlakka til ð byrja þarna. við byrjum bara strax að nudda á þriðjudagin sagði my tutor. og svo eru fimmtudagar notaðir í að lesa og gera verkefni og svona. þarf víst að læra anatomy.. god.. en vonandi bara vöðva og e-ð þannig.. ég á eftir að massa þetta, hvað er 'etta!

annars er maría á deit núna.. hehe.. með gaur sem heitir freddy, en henni finnst hann víst leiðinlegur.. hún er búin að vera þarna í tvo daga og strax komin á deit. hvað ætli fjölskyldan hugsi ekki um hana svona á djamminu alla daga.. hah.. djók..

jæja. ég sá könguló detta ofan í fatahrúguna sem er í herberginu mínu. ég ætla að finna hana og drepa. oj. ég skelf bara við tilhugsunina.. :cry:

you know you love me.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
dagar sidan eg for ut..
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734641 dögum
Mamma og �?öll koma
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1522 dögum
�?g fer í jólafrí til íslands eftir
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1611 dögum
Dagsetning
19. maí 2012